Blásarar

Hagnýtar upplýsingar

Hljóðfærin sem kennt er á í blásaradeild skiptast í tvo hópa; tréblásturshljóðfæri og málmblásturshljóðfæri.

Tréblásturshljóðfæri eru t.d. blokkflauta, þverflauta, óbó, klarinett, saxófónn og fagott. 

Málmblásturhljóðfæri eru t.d. trompet, kornett, es-horn, franskt horn, baritón-horn, básúna og túba.

Blásaranámið er þríþætt;  einkatímar á hljóðfærið, hóptímar í tónfræði og samspil/hljómsveitir. Mjög mikilvægt er að æfa sig daglega og fyrir yngri nemendur er oft gott að æfa sig oft og stutt í hvert sinn frekar en sjaldan og lengi.

Brasshóptímanám er nýjung í starfsemi skólans og fóru fyrst fram síðastliðinn vetur. Nemendum er kennt í 2-3 manna hópum í grunnskólunum. Hver kennslustund er 45 mínútur og sér Vilhjálmur Ingi Sigurðarson um kennsluna. Í framtíðinni munu krakkarnir spila saman í blásarasveitum. Skemmtilegt nám fyrir fjöruga krakka!

Blásarar eru svo heppnir að hafa frábært foreldrafélag sem styður vel við starfið.  Stjórn foreldrafélagsins sér meðal annars um fjáröflun fyrir blásarasveitirnar og foreldrar taka því iðulega ljúfmannlega þegar beðið er um aðstoð frá þeim.

Athugið: Öll blásturshljóðfæri þarf að passa fyrir óvitum eins og litlum börnum eða gæludýrum. Ekki leyfa vinunum (eða foreldrunum!) að prófa nema undir ströngu eftirliti. Tréblásturshljóðfærin eru sérstaklega viðkvæm fyrir hitabreytingum og raka. Ekki geyma þau út í bíl, upp  við ofn eða í gluggakistum. 

Ef hljóðfærin bila eða eitthvað situr fast t.a.m. munnstykki eða ventlar ræðið þá við kennarann. Alls ekki reyna að losa munnstykki, ventla eða baulur sjálf, það getur farið illa!

Hljómsveitarstarf:

Athugið að þátttaka í blásarasveitum er hluti af  námi í áfangadeild og því skyldumæting.

Sjá stundaskrá fyrir samspilstíma hjá blásurum


Nokkrar áhugaverðar slóðir:

http://www.rkingmusic.com/

http://www.musicroom.com/

http://www.youtube.com/

http://www.tonastodin.is/

http://www.yamaha.com/

http://www.selmer.com/

http://www.bachbrass.com/

http://www.sinfonianord.com/

http://www.sinfonia.is/

http://www.musik.is/

http://www.tonlist.is/

http://www.mic.is/


Kennarar við deildina veturinn 2009-2010:

 Alberto Carmona                          saxófónn 

Jakub Kolosowski                         tréblástur                                 

Petrea Óskarsdóttir                      þverflauta                                

Una Björg Hjartardóttir                 tréblástur          

Vilhjálmur Ingi Sigurðarson           málmblástur 

Kaldo Kiis                                      málmblástur                            

Daníel Þorsteinsson                      undirleikur




Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn