Flautukór

Flautukórinn samanstendur af flautuleikurum á miðstigi. Þeir koma saman á þriðjudagskvöldum kl 20 í sal skólans og æfa ýmis verk, bæði auðveld og krefjandi en öll skemmtileg. Þegar svona margar flautur koma saman er nauðsynlegt að geta opnað eyrun vel!

Baldur Auðunn Vilhjálmsson
Hulda Björk Jónsdóttir
Sólrún Arney Siggeirsdóttir
Sunna Berglind Sigurðardóttir
Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir
Helen Birta Kristjánsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Rakel Ingólfsdóttir
Vigdís Arna Magnúsdóttir

31. mars 2009

Fín mæting í kvöld og flestir með nótur :). Við byrjuðum á að æfa tækniæfingar eftir Taffanel & Gaubert sem við höfum ekki kíkt á áður. Við skoðuðum líka Dance Steps, bítlalagið Michelle og rifjuðum upp kynni af J.S. Bach og Bouree-inu hans. Gleðilega páska!

 

24. mars 2009

Fín mæting í kvöld en nokkuð var um að nóturnar gleymdust heima. Það er ekki alveg nógu gott og tefur æfinguna mikið. Við hituðum upp með krómatískum tríóluæfingum - uppáhald allra :-) Við æfðum líka Dance Steps og tókst að spila alla kaflana í gegn. Að lokum kíktum við aðeins á Michelle eftir Lennon/McCartney. Það verður eitt af þessum lögum þar sem allir eiga að kunna allar raddir!


17. mars 2009

Æfingin í kvöld var nokkuð óvenjuleg, því Anna Gunnarsdóttir sem er að fara þreyta framhaldspróf eftir tvo daga kom til okkar og spilaði verkin sín fyrir okkur. Takk kærlega Anna! Við æfðum líka sömbuna úr Dance Steps og lásum eitt bítlalag af blaði - hver veit nema við höldum áfram með það.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn