Markmið
Markmið gítarnámsins er að nemendur öðlist fyrst og fremst færni við leik klassískrar tónlistar og kynnist ólíkum stílum
hennar. Nemendur taka þátt í samspili og auka færni sína í undirleik með söng eða einleikhljóðfærum. Nemendur fá
þjálfun í að koma fram og leika fyrir aðra. Þeir njóta einstaklingsmiðaðrar kennslu og er tilgangur kennslunnar að þroska og
vekja áhuga á fjölbreyttri tónlist.
Gítarkennarar TónAk eru fjórir og kenna þrír þeirra á klassískan gítar:
Indrek Pajus
Kristján Edelstein
Matti Tapani Sarinen
Starfsemi
Gítarkennarar skipuleggja jóla- og vortónleika en auk þess koma nemendur reglulega fram á
miðvikudagtónleikum og öðrum viðburðum sem að skólinn stendur fyrir. Haldin hafa verið DVD-kvöld og Pizzukvöld eða kaffi hefur verið
haldið að loknum tónleikum. Foreldrafélag gítarnemenda er starfrækt og aðstoðar það við viðburði deildarinnar.
Nokkrar áhugaverðar síður: