Grunnnám

Hvað er grunnnám?

 

Grunnnám er nám fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára og er samansett úr tveimur áföngum. 

Tóngæði er fyrir börn í 1. og 2. bekk grunnskólanna.  Allir nemendur í þessum bekkjum taka þátt í náminu.  Þar er haldið áfram að efla tónlistarþroska barnsins.  Hér er byrjað að kynna reglulegt hljóðfæranám fyrir barninu með blokkflautuleik.  

Tónæði er fyrir börn í 3. og 4. bekk grunnskólanna.  Til þess að vera skráður í þetta nám þarf nemandinn annað hvort að vera í hljóðfæranámi við TA eða þá skráður sérstaklega.  Þetta er tónfræðatengt nám þar sem gleðin er í fyrirrúmi.  

Rauði þráðurinn í gegnum grunnnámið er söngur, leikur og hreyfing.  Einnig er leitast við að kynna hljóðfæraleik fyrir börnunum með ýmsum hætti.

Hvernig verður nálgunin?

Farið verður eftir Aðalnámskrá tónlistarskóla við mótun á Grunnnáminu.

Lögð er áhersla á að koma til móts við áhuga og þroska nemendanna. 

Meðal þess sem verður haft að leiðarljósi er að oft er auðveldara fyrir kennarann að beygja sig örlítið niður og leggja við hlustir.

Grunnnámið er í stöðugri endurskoðum með vinnubrögð og framfarir í huga.

Kennarar í grunnnámsdeild eru:

Ármann Einarsson

Heimir Bjarni Ingimarsson

Hjördís Eva Ólafsdóttir

Kati M. Sarinen

 

 

Einnig koma að grunnnáminu:

Elínborg Loftsdóttir í Lundarskóla

Sigurlína Jónsdóttir í Brekkuskóla

Ásta Magnúsdóttir í Giljaskóla

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn