Að loknu grunnprófi hefja nemendur nám í
klassískri deild Tónlistarskólans. Í deildinni leggja nemendur áherslu á að læra og njóta klassískrar tónlistar en einnig
kynnast nemendur öðrum stíltegundum. Í deildinni er öflugt og gott hljómsveitastarf en uppistaða námsins byggir á kjarngóðri
þekkingu á tónfræðigreinum og einkatímum hjá vel menntuðu fagfólki. Í klassísku deildinni er spilagleði nemenda og
ánægja í bland við jákvæðan aga ávalt í fyrirrúmi.
Kennt er á eftirfarandi hljóðfæri:
Strengjahljóðfæri
Blásturhljóðfæri
Píanó
Slagverkshljóðfæri
Gítar
Klassískur söngur


















