Námið


Námsskipulagið í hnotskurn.

Tónlistarskólinn á Akureyri kappkostar að mæta þörfum og óskum nemenda sinna eftir því sem frekast er kostur en í skólanum er boðið upp á einstaklingsmiðað nám þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar í fyrirrúmi.  Í skólanum er hægt að stunda ritmískt og klassískt nám með öflugu hljómsveitastarfi í samræmi við aðalnámsskrá tónlistarskólanna auk gæðanáms í elstu Suzukideild landsins.  

Auk Suzukideildarinnar skiptist skólinn í 3 deildir en það eru grunndeild, klassísk deild og ritmísk deild.  Í Grunndeild stunda þeir nemendur nám sem ekki hafa enn tekið grunnpróf en þar er lögð áhersla á fjörugt og skemmtilegt alhliða tónlistarnám sem lýkur með Grunnprófi.  Eftir grunnprófið gefst nemendum svo kostur á að velja hvort þeir vilja tilheyra klassískri eða ritmískri deild skólans en hefst það nám á miðstigi og lýkur með framhaldsstigi.  Suzuki deild skólans fylgir örlítið öðru skipulagi en hinar deildirnar og hér til vinstri gefur að líta upplýsingar um frekara fyrirkomulag deildanna.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn