Hljóðfæri


Tónlistarskólinn á Akureyri býður upp á fjölþætt tónlistarnám.. Hægt er að læra á neðangreind hljóðfæri og söng. Skólinn rekur listnámsbrautir í tónlist í samvinnu við Menntaskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri. Lengra komnir nemendur geta sótt tíma í kórstjórn. Hljómsveitarstarf skipar stóran sess í starfi skólans. Nauðsynlegt er að nema tónfræðigreinar með öðru námi. Nemendur á fiðlu, víólu, selló og píanó geta lært samkvæmt Suzukiaðferð. 


Hljómborðshljóðfæri:

  1. Píanó
  2. Harmonikka
  3. Hljómborð
  4. Orgel

Strengjahljóðfæri:

  1. Fiðla
  2. Víóla
  3. Selló
  4. Kontrabassi

Gítar:

  1. Klassískur gítar
  2. Rafgítar
  3. Rafbassi

Tréblásturshljóðfæri:

  1. Þverflauta
  2. Óbó
  3. Klarínett
  4. Fagott
  5. Saxófónn
  6. Blokkflauta

Málmblásturshljóðfæri:

  1. Trompet
  2. Kornett
  3. Horn
  4. Básúna
  5. Bariton-horn
  6. Túba

Söngur:

  1. Klassískur söngur
  2. Djass og dægurlagasöngur

Slagverk:

  1. Trommusett
  2. Mallethljóðfæri
  3. Pákur
  4. Klassískt slagverk

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn