SAGA SKÓLANS


Tónlistarskólinn á Akureyri var stofnaður árið 1946 og er einn elsti og rótgrónasti tónlistarskóli landsins.  Skólinn hefur tekið töluverðum breytingum í gegn um tíðina og er nú staðsettur í gamla Linduhúsinu við Hvannavelli 14.  Við skólann starfa fjórar deildir og er kennt á öll möguleg hljóðfæri við skólann allt frá þverflautum til rafmagnsgítara enda er bæði sígildri tónlist og dægurlagatónlist gert hátt undir höfði í starfinu.  Í tónlistarskólanum er lögð áhersla á að nemendur hljóti sem víðtækasta tónlistarmenntun og að námið sé ávallt skemmtilegt en um leið krefjandi.  Tónak heyrir undir skólanefnd Akureyrar og vinnur í nánu samstarfi við grunnskólana í bænum.  Kennarar skólans kenna tónfræði, tónmennt og aðra hóptíma innan veggja grunnskólanna auk þess að bjóða uppá hljóðfæranám í grunnskólunum á skólatíma en þetta sparar nemendum og foreldrum auka ferðir.  Skólinn er einn stærsti Tónlistarskóli landsins en við hann starfa um 35 fagmenntaðir kennarar sem þjónusta um 1200 grunnskólanemendur auk þess að vera með um 500 nemendur í hljóðfæranámi.  Skólinn heldur óteljandi námskeið og býður nemendum uppá ýmsar hljómsveitir allt frá rapp og hipphoppsveitum til háklassískrar sinfóníuhljómsveitar og strengjasveita.    Núverandi skólastjóri tónlistarskólans er Hjörleifur Örn Jónsson og aðstoðarskólastjóri Kolbrún Jónsdóttir.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn