Skólareglur Tónlistarskólans á Akureyri
- Nemendum ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir. Veikindaforföll ber að tilkynna á skrifstofu skólans eða á Mentor með eins
miklum fyrirvara og unnt er.
- Nemendum er óheimilt að flytja tónlist opinberlega utan skólans nema með vitund og samþykki aðalkennara og /eða skólastjóra.
- Nemendum tónlistarskólans ber að taka þátt í samspili og hljómsveitarstarfi og tónfræðigreinum skv.
skólanámsskrá eða eftir tilmælum aðalkennara eða skólastjóra. Sama gildir um þátttöku í tónleikum.
- Nemendum ber að ganga snyrtilega um og skal sú meginregla virt að skilja við á sama hátt og komið er að.
- Óheimilt er að flytja hljóðfæri eða húsgögn á milli stofa nema með leyfi starfsmanna skólans og skal þeim skilað aftur
á sama stað.
Þeir nemendur sem eru með hljóðfæri á leigu frá tónlistarskólanum eru beðnir um að láta tryggingafélag sitt vita við upphaf leigutíma. Ef tjón verður á hljóðfæri í eigu skólans þá ber leigutaki kostnað af því. Þess vegna er gott að vera tryggður.

















