Stefna skólans


Tónlistarskólinn á Akureyri er stærsti skóli sinnar tegundar á norðurlandi.  Auk þess að þjónusta byrjendur með kjarngóðri undirstöðu undir frekara nám er ein af megin stoðum í stefnu skólans að bjóða möguleika á að stunda tónlistarnám á efri stigum með allri þeirri þjónustu sem því fylgir. Skólinn státar sig af því að bjóða upp á öflugt hljómsveitastarfi og fjölbreytt bóklegt nám sem er með því besta sem gerist á landinu sem og öfluga tengingu út í atvinnulífið. 

Tónlistarskólinn á Akureyri er ekki síður menningarstofnun en fræðslustofnun en þar starfa og stúdera flestir þeirra sem kalla má atvinnutónlistarmenn á svæðinu. Skólinn hvetur kennara sína til að taka virkan þátt í tónleikahaldi, menningarviðburðum og tónlistariðnaði á norðurlandi og reynir að búa þeim starfsumhverfi sem auðveldar þeim að stunda list sína innan veggja skólans.  Skólinn starfar í nánu samstarfi við flestar menningarstofnanir bæjarins einnig sem hann á farsæl samskipti við bæði tónlistarskóla Eyjafjarðar og Dalvíkur. Tenging skólans við atvinnulífið býður upp á mikla möguleika og mun stjórn skólans vinna að því að styðja við bakið á menningu norðlendinga eins og hún hefur gert síðustu 63 árin. 


Eftirfarandi er úr reglugerð fyrir tónlistarskólann á Akureyri :

Tónlistarskólinn á Akureyri stefnir að því að hér á Akureyri verði mikil almenn þekking og áhugi á tónlist. Og..

  • Að skólinn skili frá sér áhugasömum og metnaðarfullum tónlistariðkendum sem auðgi og bæti bæjarlífið.
  • Að skólinn veiti góðan undirbúning fyrir háskólanám í tónlist.
  • Að lögð verði mikil áhersla á íslenska tónlist í starfi skólans.
  • Skólinn stefnir að því að mæta þörfum nemenda miðað við getu.

     

Skólinn stefnir að því að vera með fjölbreytt námsframboð og vera í fararbroddi tónlistarskóla hvað varðar kennsluhætti, námsárangur, aðbúnað, líðan og þróunarstarf.

Leið til að ná þessari sýn er:

  • Að annast kennslu í hljóðfæraleik og söng ásamt kennslu í öðrum tónlistargreinum, sem gert er ráð fyrir í námsskrám tónlistarskólanna.
  • Að búa nemendum fjölbreytt skilyrði til að þroska tónlistarhæfileika sína og sköpunargáfu.
  • Að leggja áherslu á félagslegt gildi tónlistariðkunar með þátttöku nemenda í samleik, kór- og hljómsveitarstarfi
  • Að búa nemendur undir framhaldsnám í tónlist.
  • gera fullorðnum kleift að auðga tómstundir sínar með tónlistariðkun.
  • Að styðja kennara skólans til tónleikahalds.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn