Hagnýtar upplýsingar
Slagverksnámið í klassísku deildinni er þríþætt en þar er lögð áhersla á kennslu á hljómborðsslagverk,
sneriltrommuleik og pákur auk þess sem nemendur fá að kynnast ýmiskonar samsetningu af slagverkshljóðfærum í einleiksverkum sem samin eru sérstaklega
fyrir slagverk. Einnig fer þar fram öflug samspilsstarfsemi hvort sem heldur eru sérstakir slagverkshópar eða þáttaka í sinfóníuhljómsveit
eða kammerhópum.

-
Sem dæmi um Hljómborðsslagverk má nefna víbrafóna, xylofóna, marimbur og klukkuspil.
-
Pákur eru stillanlegar trommur sem gefa frá sér ákveðna tóna og eru mest notaðar í sinfóníuhljómsveitum eða kammerhópum en mikil áhersla er lögð á að nemendur nái góðu valdi á þeim.
-
Auk sneriltrommunnar læra nemendur svo að leika á ýmiskonar trommur og smáhljóðfæri s.s. tamborínur, þríhorn, málmgjöll, hristur og allt annað sem fylgir þessari yfirgripsmiklu hljóðfærafjölskyldu.

Kennslufyrirkomulag
Slagverksnámið er þríþætt; einkatímar á hljóðfærið, hóptímar í tónfræði og
samspil/hljómsveitir.
Mjögmikilvægt er að æfa sig daglega og fyrir yngri nemendur er oft gott að æfa sig oft og stutt í hvert sinn frekar en sjaldan og lengi.
Eftirfarandi hljómsveitir verða starfandi fyrir klassíska slagverksleikara í vetur:
Sinfóníuhljómsveit skólans
Marimbana
Spoogie Boogie
Sforzando
Slagverkskennarar við klassísku deildina veturinn 2009-2010:
Ludvig Kári Forberg
Hjörleifur Jónsson
Halldór G Hauksson (Halli Gulli)
Nokkrar áhugaverðar slóðir:
http://www.eng-kroumata.sk-2.se/

















