Við kennslu söngs starfa 2 söngkennarar og undirleikari. Skipulag hóptíma og skapandi verkefna eru unnin í samráði við söngkennara.
Í klassískri deild er kenndur einsöngur samkvæmt Aðalnámsskrá Tónlistarskóla. Í því felst kennsla í söng (rétt líkamsstaða, öndun og raddþjálfun), túlkun og framkoma.
Markmið söngkennslu er fyrst og fremst það að þjálfa nemendur í því að flytja söngtónlist. Hvort heldur sem um er að ræða einsöng eða samsöng.
Námsgreinar
Grunnnám: Söngur 1 klst. á viku. Undirleikur, opinn undirleikstími, skráning. Samsöngur 2 klst á viku (hóptími).
Tónfræðigreinar 2 klst. á viku.
Miðnám:Söngur 1 klst. á viku. Undirleikur ¼ klst. á viku. Samsöngur 2 klst. á viku (hóptími).
Tónfræðigreinar 2 klst. á viku.
Framhaldsnám:Söngur 1 klst. á viku. Undirleikur ½ klst. á viku. Samsöngur 2 klst. á viku (frjáls mæting)
Tónfræðigreinar 2-3 klst. á viku. Valgreinar á framhaldsstigi (hóptímar):
Ljóðadeild 2 klst. á viku, Óperudeild 2 klst. á viku.
Allar námsgreinar eru skyldufög nema annað sé tekið fram.
Söngkennarar klassískrar deildar veturinn 2009-2010:
Eydís Úlfarsdóttir söngur, samsöngur
Michael Jón Clarke, söngur, samsöngur, ljóðadeild, óperudeild
Daníel Þorsteinsson, undirleikur ljóðadeild og óperudeild
|
||||||||||||||||||















