Strengir


Hagnýtar upplýsingar:

Í Tónlistarskólanum á Akureyri er kennt eftirfarandi strengjahljóðfæri: Fiðlu, víólu, selló og kontrabassa.  Mismunandi er á hvaða aldri nemendur hefja nám á strengjahljóðfæri en nemendur sem hefja nám ungir byrja oftast í Suzukideild.

Um 90 nemendur leggja stund á strengjanám við Tónak og tilheyra margir þeirra einnig Suzukideildinni. Starfræktar eru tvær strengjasveitir, en auk þess taka nemendur þátt í ýmiskonar samspili og leika með Sinfóníuhljómsveit skólans.


Kennslufyrirkomulag:

Nemendur sækja einkatíma ýmisst hálftíma eða klukkutíma á viku. Einnig taka allir nemendur sem náð hafa valdi á grunntækni í hljóðfæraleik þátt í strengjasveitum, sinfóníuhljómsveit eða öðru samspili.

Samspilsæfingar:

Strengjasveit 1, Fimmtudaga kl. 16:00-17:00 í salnum , stjórnandi Ásdís Arnardóttir

Sinfóníuhljómsveit, mánudaga  raddæfing á sal 16:00-17:00 hjá Eydísi. Æfing með öllum mánudaga kl. 17:00-18:00 í salnum.  Stjórnandi er Michael Jón Clarke.
Strengjasveit 3, fimmtudaga 17:00-19:00 í stofu 8 eða sal, stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson


Foreldrafélag er starfrækt með foreldrum strengjanema. Tengiliður foreldrafélaga og TónAk er Eydís Úlfarsdóttir.


Kennarar við deildina veturinn 2009-2010:

Ásdís Arnardóttir, selló

Daníel Þorsteinsson, undirleikari

Eydís Úlfarsdóttir, fiðla og víóla

Helga Bryndís Magnúsdóttir, undirleikari

Indrek Pajus, kontrabassi

Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla

Marcin Lazarz, fiðla

Tiina Kuusmik, fiðla

Um hljóðfæri strengjadeildar:

Fiðlan er minnsta hljóðfæri strengjafjölskyldunnar og hefur einnig hæsta raddsviðið. Leikið er á fiðlu með boga og er henni haldið undir hökunni. Fiðlan hefur fjóra strengi, g d a og e. Nemendur geta hafið fiðlunám yngst um 3-4 ára aldur.

Víólan (lágfiðla) er eins og fiðla í laginu en örlítið stærri og hefur dýpri tón. Víólu er haldið undir hökunni og leikið er með boga. Strengir víólunnar eru fjórir og nefnast c g d og a. Nemendur geta hafið nám á víólu um 3-4 ára aldur.

Selló (knéfiðla) er mun stærra en fiðla og víóla en þó eins í laginu og leikið er með boga. Sellóið er oft í hlutverki bassahljóðfæris en er líka mikið notað sem einleikshljóðfæri. Þegar leikið er á selló er setið og hvílir hljóðfærið á málmpinna. Nemendur geta hafið sellónám um 5 ára aldur. Strengir sellósins eru þeir sömu og á víólunni en áttund neðar, c g d og a.

Kontrabassi er dýpsta strengjahljóðfærið. Hann er líkur hinum strengjahljóðfærunum í útliti en hefur signar axlir. Sumir bassar eru fimm strengja og hljóðfærið hefur mjög djúpan tón. Kontrabassi er mikilvægur hluti í ýmiskonar klassískri tónlist en er einnig mikið notaður í djass og þjóðlagatónlist.

 

Nokkrar áhugaverðar slóðir:

http://www.sinfonianord.com/

http://www.sinfonia.is/

http://www.tono.is/

http://www.lhi.is/

 

 

 

 


Í myndasafni skólans ber að líta myndir úr starfi strengjanemenda.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn