

Hagnýtar upplýsingar:
Í Suzukideild er kennt á fiðlu, víólu, selló og píanó. Kennt er eftir hugmyndafræði japanska fiðluleikarans Shinichi Suzuki og eru kennarar deildarinnar sérstaklega menntaðir sem Suzukikennarar eða eru í slíku námi. Suzuki trúði því að tónlistarhæfileikar væru ekki meðfæddir, heldur ráðist hæfileikar að aðstæðum og umhverfi sem börn eru fædd í. Lögð er áhersla á að námið sé stundað í jákvæðu umhverfi og læra nemendur eftir eyra fyrstu ári. Námsbókum fylgja geisladiskar og er mjög mikilvægt að nemendur séu duglegir að hlusta á þá. Nótnalestur er kynntur þegar við á. Foreldrar sækja alla tíma með börnum sínum fyrstu árin.
Kennslufyrirkomulag:
Nemendur geta hafið nám við 4-5 ára aldur. Skólinn býður þó upp á undirbúningsnám "Suzuki-kríli", sem hefja má um 3-4 ára aldur. Við upphaf námsins sækja foreldrar tíma án barna sinna og það nám tekur um 6 vikur. Mikilvægt er að foreldrar fái innsýn inn í nám barna sinna, kynnist hugmyndafræðinnni og læra foreldrar að leika á hljóðfærin fyrst. Þessi grunnur er undirstaða þess að foreldrar geti sinnt náminu sem skildi, þar sem að foreldrar sjá um heimaæfingar fyrst um sinn.
Nemandi sækir einkatíma einu sinni í viku (1/2 hálftími) og hóptíma tvisvar sinnum í mánuði. Þegar líður á námið auka sumir nemendur við sig og eru tvisvar sinnum í einkatíma í viku og taka þátt í öðru samspili á borð við strengjasveitir skólans.



Suzukideildin hefur mjög öflugt foreldrafélag. Skipulagðar eru vorferðir, haustferðir, jólaball, skemmtikvöld svo ekki sé minnst á sameiginlegt kökuhlaðborð að loknum tónleikum deildarinnar. Foreldrafélagið tekur einnig þátt í skipulagningu Suzukinámskeiða. Mikill drifkraftur og elja félagsins hefur skilað sér mjög vel og myndast oft sterk vinabönd milli nemenda sem hægt er að þakka félaginu að miklu leiti.
Kennarar við deildina veturinn 2009-2010:
Ásdís Arnardóttir, sellókennari
Eydís Úlfarsdóttir, víólukennaranemi
Kolbrún Jónsdóttir, píanókennari
Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðlukennari
Lidia Kolosowska, píanókennari
Marcin Lazarz, fiðlukennari
Tiina Kuusmik, fiðlukennari
Nokkrar áhugaverðar slóðir:
Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar

















