(Hægt er að nálgast stundaskrár með því að smella hér)
Við Tónlistarskólann á Akureyri er öflug tónlistarkennsla. Kenndir eru eftirfarandi áfangar:
- Tónæði í 3. og 4. bekk
- Skapandi tónlistarmiðlun 1 og 2 og sérstakir hópar fyrir unglinga og fullorðna
- Grunnpróf 1 vetur (áður tónfræði 3)
- Miðnám 1. ár (áður tónfræði 4)
- Miðnám 2. ár (áður hljómfræði 1 og tónheyrn 1) Tekið er samræmt miðpróf á vegum Prófanefndar Tónlistarskóla að loknum þessum áfanga.
- Framhaldsnám 1.-3.ár (áður hljómfræði og tónheyrn 2 - 4)
- • Kontrapunktur (valgrein í framhaldsnámi)
- • Tónlistarsaga I-II (framhaldsnám)
- • Íslensk tónlistarsaga (valgrein í framhaldsnámi)
- • Kórstjórn (valgrein í framhaldsnámi)
Nemendum á áfangabraut ber skylda til að stunda nám í tónfræði samhliða hljóðfæra-/söngnámi. Nemendur sem komnir eru í 5. bekk fara í skapandi tónlistarmiðlun. Í 7. bekk taka nemendur grunnpróf í tónfræði ef þeir hafa lokið STM 1 og 2. Hver áfangi er kenndur 1 klst. í viku þar til í Miðnámi á 2. ári þá eru það 2 klst. á viku, og miðað er við, að til að ljúka framhaldsprófi í tónfræðagreinum liggi 7-8 ára nám að baki.
Tónæði
Í Tónæði eru stigin fyrstu skrefin í tónfræðanámi við Tónlistarskólann.
Námið er byggt upp á leik, söng og hreyfingu og er mikil áhersla lögð á
það að koma til móts við áhuga, þroska og þarfir nemendanna. Þeir
nemendur úr 3. og 4. bekk sem eru skráðir til náms í Tónlistarskólanum á
Akureyri hefja sjálfkrafa nám í Tónæði en einnig er hægt að skrá sig
sérstaklega í Tónæði námið í gegnum Tónlistarskólann á Akureyri.
Skapandi tónlistarmiðlun
Í skapandi tónlistarmiðlun er kennd tónfræði á sem fjölbreytasta máta í
gegnum tónlist. Aðaláherslan er að læra og skilja tónfræðina í gegnum verknað en ekki af blaði. Lagðar eru
áherslur á tónheyrn, hlustun, hljóðfæravinnu, tónsköpun, hreyfingu, leiki og söng. Stuðst er við aðalnámskrá
tónlistarskóla í tónfræðigreinum í skapandi tónlistarmiðlun.
Rytmísk Tónfræði I
Kennsla í rytmískri tónfræði á miðstigi. Tveir hópar, 1
klukkustund í senn einu sinni í viku.
Kennd er rytmísk tónfræði skv. nýrri námsskrá menntamálaráðuneytisins er kom út í haust og er um að ræða
samþætt nám er byggir á hefðbundnum grunni tónfræðanáms en með sérstakri áherslu á þætti
tónfræða og tónheyrnar er lúta sér í lagi að rytmískri tónlist. Áhersla er á jazzhljómfræði og
hagnýta notkun hennar til spuna en einnig á tónheyrn, hlustun og þau almennu tónfræðiatriði er ekki var lokið í grunnnámi.
Tónfræði - Grunnstig
Táknmál tónlistarinnar útskýrt og nemendur þjálfaðir í nótnaritun, tónheyrn, söng eftir nótum,
taktþjálfun, hlustun og greiningu. sköpun o.fl. Þá eru hljóðfæri kynnt og mism. blær þeirra. Nemendur vinna og skila verkefnum hér
að lútandi og taka grunnpróf í tónfræði í lok námstímans. Hluti námsins er valverkefni sem getur verið t.d.
tónsmíð, eða ritgerð. Kennt er í hóptímum.
Tónfræði - Miðstig
Tónfræði miðstigs er beint framhald af tónfræði grunnstigs og skilyrði er að hafa lokið grunnstiginu. Haldið er áfram með þau
atriði sem byrjað var á í grunnstiginu með meiri áherslu á hlustun og greiningu. Þá er einnig farið í
undirstöðuatriði hljómfræði og stutt ágrip af tónlistarsögu. Hluti námsins er valverkefni sem getur verið t.d. tónsmíð,
vefsíða eða ritgerð. Við lok miðstigs er tekið samræmt próf frá prófanefnd tónlistarskóla. Kennslan fer fram í
hóptímum.
Tónfræði – Framhaldsstig
Tónfræði framhaldsstigs stigs er beint framhald af tónfræði miðstigs og skilyrði er að hafa lokið miðstiginu. Námið skiptist í
aðalatriðum í hljómfræði, og tónheyrn sem kennd eru í aðskildum tímum. Í hljómfræði farið í
þríhljóma og tengsl þeirra og hljómhvörf, og smám saman bætt við sjöundarhljómum, aukaforhljómum, aukaminnkuðum
hljómum, napólíhljómi og stækkuðum sexundarhljómum. Hluti námsins er tónsmíðaverkefni þar sem
tónfræði- og hljómfræðiþekkingin er notuð í skapandi verkefni.
Í tónheyrn er takt- og tónskyn nemandans þjálfað og hæfni hans þroskuð til að greina það sem hann heyrir. Mikið er lagt
upp úr söng, hrynlestri, hljómheyrn og ýmsum diktatæfingum. Kennslan fer fram í hóptímum.
Tónlistarsaga I - II
Námið skiptist í 2 áfanga sem hvor um sig er kenndur á einum vetri. Aðeins annar áfanginn er kenndur í senn en nemendur geta byrjað á
hvorum sem er. Í Tónlistarsögu I er kynnt vestræn tónlist fram til 1750 og í Tónlistarsögu II tónlist eftir 1750. Í kennslunni er
mjög mikið lagt upp úr hlustun. Tónlistarsagan er kennd í hóptímum, tvær samliggjandi kennslustundir á viku.
Nemendur á tónlistarbraut og þeir sem ljúka framhaldsprófi á hljóðfæri eða í söng þurfa að ljúka
báðum tónlistarsöguáföngunum.
Valgrein - Íslensk tónlistarsaga
Ekki er um eiginlegt námskeið að ræða en nemendur hitta kennara c.a. 4 sinnum á kennsluárinu og skrifa undir hans leiðsögn ritgerð c.a 20 bls.
með efni úr íslenskri tónlistarsögu
Valgrein - Kontrapunktur fyrir byrjendur
Farið er í aðferðir við kontrapunkt frá tímum J.S Bachs, hvernig bæta má rödd við aðra sem er gefin, fyrst nótu á
móti nótu, og síðan fleiri nótur á móti nótu og grunnreglur í sambandi við það. Ennfremur skoðaður kontrapunktur
í invensjónum eftir Bach. Nauðsynlegt er að nemendur hafi lært töluvert í hljómfræði áður en þeir fara í þetta
námskeið.
Valgrein - Hljómsveitaraðstoð
Nú býðst nemendum á framhaldsstigi nýr valáfangi sem kallast “hljómsveitaraðstoð og útsetningar”. Áfanginn felur í sér að aðstoða nemendur í Sinfóníuhljómsveit Tónak eða Stórsveit Tónak á æfingum. Við þetta öðlast nemendur reynslu af kennslu og hljómsveitarstarfi. Einnig munu nemendur aðstoða við að umskrifa/útsetja parta eftir þörfum. Skila þarf ritgerð í lok vorannar og er efni valið í samráði við deildarstjóra Tónlistarskólans á Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir Lára Sóley Jóhannsdóttir, deildarstjóri klassískrar deildar, larasol@yahoo.com

















