Opnunartími og símavarsla

 

Skólinn

Stjórn tónlistarskólans leggur áherslu á það að dyrnar séu ávallt opnar fyrir áhugasama nemendur hvort sem er fyrir æfingar eða aðra starfsemi.  Ef nemendur hafa áhuga á því að nýta sér starfsemina utan opnunartíma er þeim vinsamlegast bent á að hafa samband við skólastjórnendur.

Skrifstofan

Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 8:00-15:30. Auk þess er svarað í síma til kl. 18:00 alla virka daga. Hægt er að ná símsambandi við skólann alla virka daga frá kl. 8:00-18:00. Símanúmer skólans er 460 1170, faxnúmer 460 1171. Heimasíða skólans er http://www.tonak.is og netfang skólans er tonak@akureyri.is

Ritari skólans sér um nemenda- og námsferilsskráningu, símavörslu og afgreiðslu á skrifstofu. Ritari er Ágústa Ólafsdóttir.

Bókasafn


Bókasafn skólans er opið mánudaga til föstudaga kl. 13.00 - 18.00. Á safninu geta nemendur fengið lánaðar nótur og bækur um tónlist og einnig er nokkuð til af tímaritum um tónlist.
Nemendur geta hlustað á upptökur úr hljómdiska- og plötusafni skólans á bókasafninu.

Umsjón með safninu hefur Guðný Erla Guðmundsdóttir.

 

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn