Reglur NefTónak
I. Nafn og tilgangur
-
Nemendafélag Tónlistarskólans á Akureyri heitir NefTónak.
-
Nafn félagsins skal ekki fallbeygt.
-
Félagar eru þeir nemendur Tónlistarskólans sem kæra sig um aðild. Félagsgjöld eru innheimt að hausti og eru notuð til þess að halda viðburði yfir skólaárið.
-
Tilgangur félagsins er að:
-
Hafa starfandi trúnaðarmann nemenda, sem gætir hagsmuna þeirra og sem þeir geta leitað til nafnlaust komi eitthvað uppá eða vakni einhverjar spurningar.
-
Efli félagslíf og samstöðu milli nemenda Tónlistarskólans.
-
Stuðla að samstarfi við nemendur annarra tónlistarskóla og að auka fræðslu á framhaldsnámi og listinni sjálfri.
-
II. Stjórn félagsins.
-
Stjórn NefTónak sitja þrír einstaklingar. Það eru formaður, gjaldkeri og ritari. Allir þeir sem skipa stjórnina hafa jafnan atkvæðisrétt á stjórnarfundum.
-
Hlutverk embættismanna í stjórn NefTónak:
-
Formaður skipuleggur og stjórnar fundum NefTónak . Hann ber ábyrgð á öllu sem NefTónak framkvæmir. Formaður er helsti tengiliður stjórnar NefTónak við skólayfirvöld og undirnefndir. Formaður skal leitast við að hafa góða yfirsýn yfir það sem er að gerast í skólalífinu hverju sinni.
-
Gjaldkeri sér um fjárreiður félagsins og skal færa yfir þær nákvæmt bókhald. Gjaldkeri býr til fjárhagsáætlanir og er skylt að vera ætíð vel meðvitaður um stöðu fjármála NefTónak. Gjaldkeri þarf að hafa náð 18 ára aldri.
-
Ritari skal halda fundargerðarbók og sjá um vefsíðu NefTónak sem og tengsl við vefstjóra Tónlistarskólans.
-
Að öðru leyti skiptir stjórn NefTónak með sér verkum.
-
-
Undir aðalstjórn NefTónak starfa þrjár nefndir: Fjáröflunarnefnd, Viðburðarnefnd og Rytmísknefnd.
-
Í hverri nefnd starfa þrír aðilar sem eru skipaðir af starfandi stjórn NefTónak að hverju sinni og eru hlutverk þeirra eftirfarandi:
-
Formaður sér um skipulagningu á fundum og ber ábyrgð á gerðum nefndarinnar. Hann er helsti tengiliður nefndarinnar við stjórn NefTónak.
-
Ritari skal halda fundargerðarbók.
-
Verkefnastjóri sem er yfir þeim verkefnum sem hver nefnd tekur fyrir sig
-
-
Hlutverk nefnda eru sem eftirfarandi:
-
Fjáröflunarnefnd sér um að afla styrkjum, afsláttum og halda fjáraflanir fyrir NefTónak.
-
Viðburðanefnd sér um viðburði s.s. kvöldvökur, bíókvöld o.s.fr. á vegum NefTónak. Viðburðanefndin skal einnig sjá um auglýsingagerð fyrir viðburði og tilkynningar.
-
Rytmísknefnd skal sjá um hagsmuni nemenda í Rytmískrudeildinni og þjóna svipuðu hlutverki og foreldraráð fyrir Rytmískudeild tónlistarskólans.
-
Öllum ráðum er frjálst að sækja um styrki til NefTónak fyrir þau verkefni sem þau taka sér fyrir hendur og er það þá lagt fyrir aðalstjórn.
III. Trúnaðamaður nemenda
1. Starfandi skal vera trúnaðarmaður nemenda sem skal vera sýnilegur nemendum og vel auglýstur.
2. Trúnaðarmaður skal vera einhver innan stjórnar NefTónak, annar en formaður, og er hann kosinn á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar.
3. Trúnaðarmaður skal hafa náð 18 ára aldri.
4. Trúnaðarmaður gætir hagsmuna nemenda og eiga nemendur ávallt að geta leitað nafnlaust til hans komi eitthvað uppá eða vakni einhverjar spurningar.
5. Trúnaðarmaður hefur starfrækt netfangið(trunadarmadur@gmail.com)þar sem nemendur geta leitað til hans, nafnlaust.
6. Trúnaðarmaður getur ráðfært sig við stjórn NefTónak eða skólastjóra Tónlistarskólans ef þörf krefur, en skal ávallt gæta nafnleyndar.
7. Komi upp trúnaðarbrestur hjá trúnaðarmanni skal honum tafarlaust vikið úr stjórn.
IV. Refsiákvæði
-
Embættisglöp teljast:
-
Brot á lögum skólafélagsins.
-
Að ákvæðum laganna sé ekki fullnægt.
-
Alvarlegar skyssur í starfi.
-
Sóun á fjármunum.
-
V. Gildistaka og vafaatriði
1. Komi upp ágreiningar um túlkun laganna, skal stjórn NefTónak skera úr um hann.
2. Lög þessi öðlast þegar gildi.
VI. Eignir félagsins.
-
Verði félagið ekki starfrækt í þrjú skólaár samfleytt rennur eigið fé skólafélagsins til minnningarsjóðs Þorgerðar S. Eiríksdóttur og hlutir í eigu skólafélagsins til Tónlistarskólans á Akureyri.
*Samþykkt 15.maí 2013