Um NefTónak
NefTónak, nemendafélag Tónlistarskólans á Akureyri var stofnað haustið 2010.
Markmið félagsins eru:
-
Að efla félagslíf og samstöðu milli nemenda, m.a. með því að halda kvöldvökur, tónleikakvöld og DVD kvöld, hafa hópferðir nemenda á hina ýmsu tónleika, leiklestra og sýningar. Einnig er stefnt er að árlegri menningarferð.
-
Hafa starfandi trúnaðarmann nemenda, sem gætir hagsmuna þeirra og þeir geta leitað til nafnlaust komi eitthvað uppá eða vakni einhverjar spurningar.
-
Að auka fræðslu um nám eftir Tónlistarskólann og framtíð í tónlist. Við viljum halda fyrirlestra og kynningarkvöld þar sem kennarar skólans og aðrir tónlistarmenn deila með okkur þeirra námsframvindu og tónlistarferil.
-
Halda spennandi masterclassa bæði með aðkomufólki og því hæfileikafólki sem er til staðar í skólanum. Einnig viljum við hafa hljómsveitaræfingar með blönduðum hljómsveitum þar sem yngri nemendur fá færi á að spila með eldri og lengra komnum nemendum.
-
Gera nemendaskírteini sem veita myndu hina ýmsu afslætti víðs vegar um bæinn. Hver og einn félagsmeðlimur fær skírteini með nafni sínu og kennitölu sem hann getur framvísað þar sem við á.
-
Virkja nemendur skólans - setja upp Hugmyndakassa í Tónlistarskólanum þar sem nemendur geti komið hugmyndum sínum á framfæri, um það sem mætti bæta í skólanum eða ferskar hugmyndir að atburðum.
-
Halda úti virkri heimasíðu, þar sem nemendur geta séð afslætti og tilboð, fylgst með næstu atburðum, komið hugmyndum á framfæri eða spjallað um allt milli himins og jarðar.
- Að halda félagsgjöldum í lágmarki.
