Fara í efni

Birkir Blær sendir frá sér lagið Stay

Birkir Blær sendir frá sér lagið Stay

Birkir Blær hefur verið duglegur við spilamennsku og frá því að hann sigraði í Söngkeppni Framhaldsskólanna á síðasta ári.  En hann hefur líka verið að semja töluvert af flottum lögum.  Í fyrrasumar kom út lagið Pictures sem náði vinsældum á Spotify og er komið með yfir 11.000 spilanir þar.  Nú gefur hann út nýtt lag í þó nokkuð öðruvísi útsetningu en Pictures.  Lagið heitir Stay og "pródúserað" af Stefáni Elí, en þeir félagar hafa unnið töluvert saman í vetur.  Lagið er komið á helstu tónlistarveitur.

Það er gaman að segja frá því að lagið Stay er fimmta lagið sem nemendur Tónlistarskólans á Akureyri gefa út á þessu ári.

Hér má hlusta á lagið á Spotify:

Lagið er líka komið á spilunarlista skapandi tónlistar