Fara í efni

Fjórir geisladiskar frá kennurum tónlistarskólans

Fjórir geisladiskar frá kennurum tónlistarskólans

Kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri eru duglegir við útgáfu á tónlist þessa dagana.  Hvorki fleiri né færri en fjórir geisladiskar hafa komið út á undanförnum vikum með kennurum skólans.

Diskarnir eru allir fáanlegir á skrifstofu tónlistarskólans, sem og hjá útgefendum sjálfum, og í hinum ýmsu verslunum.

Þráðurinn hvíti, er plata þar sem Helga Kvam píanóleikari og Þórhildur Örvarsdóttir flytja nýja tónlist eftir íslensk tónskáld.

Á plötunni eru lög eftir Jónas Sen,Sigurð Flosason, Harald V. Sveinbjörnsson, Kristjönu Stefánsdóttur, Helgu Kvam og Þórhildi Örvarsdóttur. Upptökustjóri var Haukur Pálmason.

Upptökur fóru fram í Akureyrarkirkju í júlíbyrjun árið 2020.
Platan er aðgengileg á öllum helstu tónlistarveitum ásamt því að vera gefin út á geisladisk.


Helga og Þórhildur hafa í mörg ár starfað saman að fjölmörgum tónlistarverkefnum,stórum sem smáum og flutt tónleikadagskrár um allt land. Þær hafa sérstaklega einbeitt sér að íslenskri tónlist og ljóðum og t.d. sett saman dagskrár í tali og tónum um Huldu
skáldkonu, Davíð Stefánsson, íslenska sönglagið og íslensk Maríuvers. Á þessum tíma hefur orðið til mjög náið samstarf við íslensk samtímatónskáld og voru pöntuð og frumflutt verk eða útsetningar á hverju ári síðastliðin 4 ár. Þráðurinn hvíti er afrakstur hluta þeirrar vinnu.

 

Hug­arró er geisla­diskur með 11 vel völdum bæna­lögum sem hafa verið útsett með það fyrir augum að ná fram ákveðnum hug­leiðslu­blæ og þannig und­ir­strika tengsl hug­leiðslu og bæn­ar. Hug­arró er fyrsta sóló­plata Mar­grétar Árna­dóttur söng­konu og mun hluti af ágóð­anum renna til Píeta sam­tak­anna á Akur­eyri, sem sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða. Um útsetn­ingar og hljóð­færa­leik sá Krist­ján Edel­stein gít­ar­leik­ari. 

Þemað sem unnið er með á plöt­unni er hug­leiðsla og bæn. Geisla­disk­ur­inn hefur að geyma 11 sálma og bæna­lög útsett í flæð­andi og róandi ambient stíl með söng og minimal­ískum und­ir­leik hinna ýmsu strengja­hljóð­færa.

Hluti ágóð­ans kemur til með að renna til Pieta sam­tak­anna. Mar­grét segir þau vera að gera stór­kost­lega hluti fyrir fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir og aðstand­endur þeirra.

Hugarró

 

Rákir er nýr diskur Ludvig Kári Quartet og inniheldur hann ferskan og frumsaminn íslenzkan jazzbræðing.

Í Ludvig Kári Quartet er úrval íslenskra og erlendra jazzleikara:

  • Ludvig Kári á víbrafón og Rhodes píanó
  • Phil Doyle á saxófón
  • Stefán Ingólfsson á bassa.
  • Einar Scheving á trommur

Rákir var tekin upp í Hofi Akureyri, og upptökumaður var Haukur Pálmason

Diskurinn fæst í Tónabúðinni og Kistu á Akureyri, og 12 Tónum, Smekkleysu, Lucky Records og Reykjavik Record Shop í Reykjavík.

 

Peysur & Parruk er fyrsta plata Gadus Morhua Ensemble.

Gadus Morhua skipa Björk Níelsdóttir, söngkona og langspil, Eyjólfur Eyjólfsson, söngvari, langspil og flauta og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, barrokselló, söngur og skáldkona.  Hljómsveitin varð til á þjóðbúningahátíð í Stykkishólmi, sem haldin er árlega skömmu eftir Jónsmessu. „Hátíðin ber heitið Skotthúfan og sumarið 2016 var þemað Jörundur hundadagakonungur. Skipuleggjendum hátíðarinnar þótti því viðeigandi að bjóða upp á tónlistardagskrá þar sem gerð yrði tilraun til að sameina kvöldvökur baðstofanna og tónlistarflutning evrópskrar hirðmenningar. Það var þá sem leiðir Eyjólfs og Steinunnar lágu saman og til varð vísir að nýjum (þjóð)tónlistarhópi. Samhljómur langspilsins og barokksellósins gaf strax ímyndunaraflinu lausan tauminn.“

Ekki leið á löngu þar til Björk slóst í hópinn og hafa þau síðan komið fram við hin ýmsu tækifæri, jafn innan lands sem utan. Ber helst að nefna tónleika á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, Sönghátíð í Hafnarborg og í Les Dominicains menningarsetrinu í Guebwiller í Frakklandi.

Peysur & Parruk var tekin upp í Hofi sumarið 2020, og upptökustjóri var Haukur Pálmason.  Diskurinn er fáanlegur í versluninni Kistu í Hofi, og menningarstaðnum Flóru í Hafnarstræti á Akureyri, og 12 tónum í Reykjavík.