Fara í efni

Framhaldsprófstónleikar Ólafar Jónasdóttur barítónhornleikara

Framhaldsprófstónleikar Ólafar Jónasdóttur barítónhornleikara

Laugardaginn 8. maí kl. 14:00 mun Ólöf Jóhansdóttir, barítónhornleikari halda framhaldsprófstónleika í Akureyrarkirkju.

Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Debussy, Jón Ásgeirsson, Bert Appermont og Geoff Richards.

Meðleikari á píanó er Helena Guðlaug Bjarnadóttir. Einnig koma fram á tónleikunum Hafsteinn Davíðsson slagverk, Helgi Þorbjörn Svavarsson túba, Ingunn Erla Sigurðardóttir trompet, Kjartan Ólafsson horn og Sóley Björk Einarsdóttir trompet.

Verið hjartanlega velkomin - Minnum á að það er grímuskylda á tónleikunum.