Fara í efni

Síðasti kennsludagur fyrir jólafrí

Síðasti kennsludagur fyrir jólafrí

Í dag er síðasti kennsludagur fyrir jólafrí í tónlistarskólanum. Við hefjum kennslu á ný mánudaginn 3. janúar 2022.

Um leið og við þökkum ykkur kærlega gott samstarf á árinu viljum við benda ykkur á að á aðfangadag kl 13:25 mun RÚV sýna upptöku frá jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru um síðustu helgi. Þar kom meðal annars fram flautukór sem í eru 3 nemendur Tónlistarskólans á Akureyri og það er alveg þess virði að horfa og hlusta.

Við hlökkum til að hitta ykkur aftur á nýju ári.

Gleðileg jól!