Fara í efni

Stefán Elí ferðast til stjarna í nýrri smáskífu

Stefán Elí ferðast til stjarna í nýrri smáskífu

Stefán Elí, nemandi í Skapandi Tónlist,  var að senda frá sér rafræna smáskífu með tveimur splunkunýjum og tilfinningaríkum lögum. Smáskífan ber heitið ,,Trip to the Stars”.  Stefán Elí samdi bæði lög og texta, auk þess að sjá um allan hljóðfæraleik og upptökur. 

Trip to the stars er upphafið á tónlistarverkefni Stefáns Elís í Skapandi Tónlist, sem mun vara fram á vor. Verkefnið heitir ,,Break My Heart so I Know” og mun fela í sér útgáfu á amk einu nýju lagi í hverjum mánuði út veturinn, ásamt tónleikahaldi og framleiðslu á ýmsum varningi.

Stefán Elí hefur spilað mikið í sumar, og m.a. töluvert af rólegri tónleikum þar sem hann kom fram bara með gítarinn. “Ég held að það hafi haft ákveðin áhrif á tónlistarsköpunina mína þar sem ég er farinn að nota gítarinn mikið meira og hugsa um hvernig ég muni spila lögin live þegar ég er að semja.  Mér líður eins og í þessu lagi/lögum taki ég tónlistina á hærra þrep en í því sem ég hef gefið út fram að þessu. Þetta er mjög tilraunakennt verk og ég var mikið að prófa mig áfram með nýjar pælingar og finnst mér það bara hafa heppnast mjög vel.”