Fara í efni

Þorgerðartónleikar miðvikudaginn 20. febrúar

Þorgerðartónleikar miðvikudaginn 20. febrúar

Miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hömrum til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.
Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.
Á tónleikunum koma fram nemendur á efri stigum og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.
Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum