Fara í efni

Yngismeyjar og klækjakvendi

Yngismeyjar og klækjakvendi

Lokaverkefni Sædísar Gunnarsdóttir í Skapandi Tónlist eru tónleikar sem bera nafnið Yngismeyjar og klækjakvendi.  Sædís heldur tónleikana fimmtudaginn 9. maí kl. 18:00 í Naustinu í Hofi.

Á efnisskránni verða söngleikjalög úr ýmsum áttum sem hafa verið hluti af námi Sædísar í skapandi tónlist við Tónlistarskólann á Akureyri.  Dætur Sædísar, Una og Eik verða með á píanó og söng.  Einnig spilar Helga María á selló og og Katrín Karítas á fiðlu.