Kjörnámsbraut með tónlistarsérhæfingu

Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs á kjörnámsbraut MA með tónlistarsérhæfingu er 200 einingar, þar af eru 86 einingar í kjarna í Menntaskólanum á Akureyri. Hér má sjá skipulag kjörnámsbrautar MA.
Í Tónlistarskólanum á Akureyri eru
-
54 einingar í kjarna í námsleiðinni Skapandi tónlist, en nemendur þurfa að minnsta kosti að ljúka 36 einingum til viðbótar í TA. Þá eru 24 einingar eftir sem nemendur geta tekið hvort heldur sem er í TA eða MA.
-
94 einingar í kjarna í námsleiðinni Klassísk tónlist. Þá eru 20 einingar eftir sem nemendur geta tekið hvort heldur sem er í TA eða MA.
-
96 einingar í kjarna í námsleiðinni Rytmísk tónlist. Þá eru 18 einingar eftir sem nemendur geta tekið hvort heldur sem er í TA eða MA.
Nánari upplýsingar veita Guðrún Ingimundardóttir, aðstoðarskólastjóri TA og Alma Oddgeirsdóttir, brautarstjóri MA.