Fara í efni

Lagalistar leikskóla

24.-28. sept

Krúsilíus

Krúsilíus 

Kannastu við köttinn minn? 
Hann klókur er en besta skinn. 
Hann er stærri en hestur 
og stærri en hús. 
Já, kötturinn minn heitir krús, krús, krús. 
Krúsilíus. 

Hann er gulur og grænn og blár 
Galdraköttur í húð og hár. 
Og ég veit hvað hann syngur 
og víst er það satt 
að Krúsilíus, hann á köflóttan hatt. 
Krúsilíus. 

Krúsilíus kynlegur er 
og klórar oft í tærnar á mér. 
Hann vill aldrei fisk 
er með væl og pex 
og segist bara vilja súkkulaðikex. 
Krúsilíus 

Og ekki nennir hann að elta mýs 
Því alla daga vill hann rjómaís. 
hann er alltaf að stækka 
en enginn það sér 
Því Krúsilíus býr í kollinum á mér. 
Krúsilíus. 

Lag og texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Anna Pálína Árnadóttir

Strengir

Steinarnir eru strengir,  
strengina vatnið knýr.  
Gaman það væri´ að vita  
hvað í vatnsins huga býr.  
 
Hvaðan skyldi það koma  
hvert er heitið þess ferð!  
Síðar á öldum söngsins  
samferða því ég verð.  
 
Lyngið á líka strengi,  
leikur blærinn á þá  
söngva sorgar og gleði  
er í sálum kveikja þrá.  
 
Vorljóð draums og vonar  
veröldin syngur öll.  
Berast vil ég með blænum  
burt yfir hæstu fjöll.  

Lag: Herdís Egilssdóttir.
Texti: Kristján frá Djúpalæk

Allir hafa eitthvað til að ganga á

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.

Fíllinn hefur feitar tær,
ljónið hefur loppur tvær,
músin hefur margar smáar,
en ormurinn hefur ansi fáar.

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.

Fiskurinn hefur fína ugga,
flóðhesturinn enga skugga
krókódíllinn kjaftinn ljóta,
sá er nú klár að láta sig fljóta.

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.

Á vængjum fljúga fuglarnir,
á fótunum ganga trúðarnir,
á hnúum hendast aparnir
á rassinum leppalúðarnir.

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.

Lag og texti: Ólafur Haukur Símonarson

Vorsöngur Ídu

 

Já, vittu til, staðhæfir vorið,
að vetrinum þoka ég frá.
Þótt enn bíði blómin í blundi
og bleik séu úthagans strá,
ég vildi þau vekja og hressa
en veit það er fullsnemmt um sinn
því geri ég holur í hjarnið 
og hleypi þar sólinni inn.

 

Svo leysi ég vatnið í læki
og lokka fram gutlið í þeim
og kalla á kríurnar léttu
að koma og flýta sér heim,
ég hristi af greinunum hrímið
svo hreiðurstað fuglarnir sjá
og skýin af himninum heilsa 
um heiðloftin skínandi blá.

Og grænjaxlar vorsins og gróður
ég gef síðan börnum að sjá.
Úr vorblómsins bikar þá bergir
ein blómfluga röndótt og smá,
svo bý ég til bala og rjóður
sem börnin finna með þökk
og helli loks heiðríku sumri 
á hlaup þeirra leiki og stökk.
og helli loks heið-ríku sumri 
á hlaup þeirra leiki og stökk.

 

Lag: George Riedel
Texti: Böðvar Guðmundsson

All out of luck

Don't work on a Sunday
Don't sleep on a Monday
Just think of a fun day when your life
Is getting you down yeah
To get through a heartache
Just picture a spring day
And play in the bright daylight a while
So give it a chance
You won't regret it

'Cause you know today won't last
forever
Tomorrow has a brand new name
I´ll give you all that I can offer
The rest is all up to you

Yeah, you're all out of luck
If you wanna give up
You've got to let go of all your bad
memories
Breaking it up
Means bringing it down
You need to get right back on track
'Cause you're all out of luck
If you wanna give up
You've got to believe in yourself
You'll be fine
'Cause you'll be mine
So just wake up before it's too late
And you're all out of love

Don't work on a Sunday
Don't sleep on a Monday
Tomorrow's a new day all the time
Just waiting for you, yeah
From dawn until midnight
Or asleep in the moonlight
You'll always be allright
Just as long as you follow your heart

You're all out of luck...

Lag: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Texti: Sveinbjörn I. Baldvinsson

Furðuverk

Furðuverk 

 

Ég á augu, ég á eyru,  
ég á lítið skrýtið nef. 
Ég á augnabrúnir og augnalok  
sem lokast er ég sef. 

Ég á kinnar og varir rauðar  
og á höfði hef ég hár. 
Eina tungu og tvö lungu  
og heila sem er klár. 

Ég á tennur og blóð sem rennur  
og hjarta sem að slær. 
Tvær hendur og tvo fætur,  
tíu fingur og tíu tær. 

Ég get gengið, ég get hlaupið,  
kann að tala mannamál. 
Ég á bakhlið, ég á framhlið  
en innst inni hef ég sál. 

Því ég er furðuverk,  
algjört furðuverk  
sem að guð bjó til.  
Ég er furðuverk,  
algjört furðuverk,  
lítið samt ég skil. 

inn í heilanum spurningum 
ég velti fyrir mér 
Og stundum koma svörin 
svona eins og af sjálfu sér 
En samt er margt svo skrítið 
sem ég ekki skil 
En það gerir ósköp lítið 
því mér finnst gaman að vera til 

Því ég er furðuverk, ( ég er furðuverk ) 
algjört furðuverk ( algjört furðuverk ) 
sem að guð bjó til.  
Ég er furðuverk, ( ég er furðuverk ) 
algjört furðuverk, ( algjört furðuverk ) 
lítið samt ég skil. 

 
 

Því ég er furðuverk, ( ég er furðuverk ) 
algjört furðuverk ( algjört furðuverk ) 
sem að guð bjó til.  
Ég er furðuverk, ( ég er furðuverk ) 
algjört furðuverk, ( algjört furðuverk ) 
lítið samt ég skil. 

Því ég er furðuverk, ( ég er furðuverk ) 
algjört furðuverk ( algjört furðuverk ) 
sem að guð bjó til.  
Ég er furðuverk, ( ég er furðuverk ) 
algjört furðuverk, ( algjört furðuverk ) 
lítið samt ég skil. 

 

Lag og texti: Jóhann G. Jóhannsson
Skoða söngbókina