Fara í efni

Teymisdagur á laugardaginn

Teymisdagur á laugardaginn

Næsta laugardagur verður teymisdagur í Tónlistarskólanum. Þá koma allir nemendur og kennarar skólans saman og njóta þess að vera saman á námskeiðum og skemmta sér saman.  Kennarar eru þessa dagana að skrá nemendur sína í námskeið sem haldin verða í skólanum frá kl. 10.00 - 12.00 í húsnæði skólans.  Kl. 12.00 munum við svo bjóða uppá pylsur og partýstemningu í Hömrum og kl. 13.00 koma allir nemendur saman í Hamraborg og njóta tónlistarflutnings í boði nemenda og kennara skólans.  Það er búist við mikilli gleði, fjöri og stemningu.  Allir foreldrar eru hjartanlega velkomnir að kynna sér starfið og taka þátt í námskeiðunum eða bara fá sér eina með öllu nema hráum.