Fara í efni

Á sprengsandi

Til baka í söngbók

Á sprengsandi

 

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, 

rennur sól á bak við Arnarfell. 

Hér á reiki' er margur óhreinn andinn 

úr því fer að skyggja á jökulsvell. 

 

:,:Drottinn leiði drösulinn minn, 

drjúgur verður síðasti áfanginn.:,: 

 

Þei þei, þei þei. Þaut í holti tófa, 

þurran vill hún blóði væta góm, 

eða líka einhver var að hóa 

undarlega digrum karlaróm. 

 

:,:Útilegumenn í Ódáðahraun 

eru kannski' að smala fé á laun.:,: 

 

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, 

rökkrið er að síga' á Herðubreið. 

Álfadrottning er að beisla gandinn, 

ekki' er gott að verða' á hennar leið. 

 

:,:Vænsta klárinn vildi' ég gefa til 

að vera kominn ofan í Kiðagil.:,: 

Lag: Sigvaldi Kaldalóns
Texti: Grímur Thomsen