Fara í efni

Bíddu pabbi

Til baka í söngbók

Bíddu pabbi

Í hinsta sinn að heiman lágu spor mín,
Því ég hamingjuna fann ei lengur þar.
Og hratt ég gekk í fyrstu, uns ég heyrði fótatak
Og háum rómi kallað til mín var, kallað:

 

Bíddu pabbi, bíddu mín, 
Bíddu, því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt, 
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín.

Ég staðar nam og starði á dóttur mína,
Er þar stautaði til mín svo hýr á brá,
Og mig skorti kjark til að segja henni, 
að bíllin biði mín að bera mig 
um langveg henni frá. Hún sagði:

 

Bíddu pabbi, bíddu mín, 
Bíddu, því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt, 
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín.

 

Ráðvilltur ég stóð um stund og þagði,
En af stað svo lagði aftur heim á leið.
Ég vissi að litla dóttir mín 
hún myndi hjálpa mér
Að mæta vanda þeim 
sem heima beið. Hún sagði:

 

 

Bíddu pabbi, bíddu mín, 
Bíddu, því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt, 
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín.

Æ, ég hljóp svo hratt, 
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín.

 

Lag: Geoff Stephens og Peter Callander
Texti: Iðunn Steinsdóttir