Fara í efni

Ég leitaði blárra blóma

Til baka í söngbók

Ég leitaði blárra blóma

Ég leitaði blárra blóma

að binda þér dálítinns veig,

en fölleit kom nóttin og frostið kalt

á fegurstu blöðin hneig.

Og ég gat ei  handsamað heldur

þá hljóma, semflögruðu um mig,

því það voru allt saman orðlausir draumar

um ástina, vorið og þig.

 

En bráðum fer sumar að sunnan

og syngur þér öll þau ljóð

sem ég hefði kosið að kveða þér einn

um kvöldin sólbjört og hljóð.

Það varpar á veg þinn rósum

og vakir við rúmið þitt

og leggur hóglátt að hjarta þínu

hvítasta blómið sitt.    

Lag: Hörður Torfason/Gylfi Þ. Gíslason
Texti: Tómas Guðmundsson