Fara í efni

Eniga Meniga

Til baka í söngbók

Eniga Meniga

ENIGA – MENIGA 

Eniga - meniga 
allir rövla um peninga 
Súkkadí - púkkadí 
kaupa meira fínerí 
kaupæði - málæði 
er þetta ekki brjálæði 

Eitthvað fyrir alla 
konur og kalla 
krakka með hár 
og kalla með skalla 
Eitthvað fyrir krakka 
káta krakkalakka 
sem kostar ekki neitt 
þú krækir bara í pakka 
eða fyndinn frakka 
eða feitan takka 

Eniga - meniga 
ég á enga peninga 
súkkadí - púkkadí 
en ég get sungið fyrir því 
sönglandi raulandi 
með garnirnar gaulandi 

Eitthvað fyrir alla 
konur og kalla 
krakka með hár 
og kalla með skalla 
Eitthvað fyrir krakka 
káta krakkalakka 
sem kostar ekki neitt 
þú krækir bara í pakka 
eða fyndinn frakka 
eða feitan takka 


 

 

 

 

Lag og texti: Ólafur Haukur Símonarson