Fara í efni

Glaðasti hundur í heimi

Til baka í söngbók

Glaðasti hundur í heimi

Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
Mér er klappað á hverjum degi og ég er að fíl’aða.

lífið henti í mig beini og ég ætla að nag’aða.

Ég hoppa út um holt og hóla
bæði gelti og spangóla
í dag ég ætla mér bara að dóla

Ég er frjáls og engum háður
bæði elskaður og dáður
í hundaskóla lífsins hef ég margar gráður

Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
Mér er klappað á hverjum degi og ég er að digg’aða.
Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
lífið henti í mig beini og ég ætla að nag’aða.

Bakvið kjötbúðina slóra
Hitti Konráð B og Óla
þeir láta mig fá pulsu svaka stóra

Ég ætla niðr’í fjöru að skreppa
gá hvort ég finni aðra seppa
ef ég sé hundsrass læt ég hann ekki sleppa…

(…sniff sniff)

Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
Mér er klappað á hverjum degi og ég er að fíl’aða.
Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
lífið henti í mig beini og ég ætla að nag’aða.

Lag og texti: Friðrik Dór