Fara í efni

Kúst og fæjó

Til baka í söngbók

Kúst og fæjó

Kúst og fæjó

 


Ég þríf, þríf og stússa
þeytist um húsið með tuskurnar (korter í sjö)
Eins gott að allt sé pússað
því aðeins er korter í stelpurnar

ég set á borðið tertuna
búin að stífa dúkana
keypti þrenns konar líkkjöra
en náði ekki að marenera öndina.

mig vantar kúst og fæjó
verð að taka soldið til
í kvöld er saumó
og hreint ég hafa vil

Ég vona að Rúna þambi ekki of mikið
Eins og í Berlínarferðinni (hún er alki)
og vona að Ása góni ekki á rykið 
og blettinn á teppinu í stofunni.

hvernig verður svo með Hrafnhildi?
ætli hún tali við Valgerði
Síðast lentu þær í rifrildi
og lokuðu á hvor aðra á snapptjatti

Mig vantar kúst og fæjó
Verð að taka soldið til
í Kvöld er saumó
drögum kannski spil

Við höfum fylgst að í gegnum árin
það gefur mér svo mikið að hitta þær (vinkonurnar)
höfum hlegið og þerrað tárin
Hver einasta þeirra er mér svo kær.

Hjálpuðu mér í gegnum skilnaðinn
fóru með mig í bústaðinn
hafa passað öll mín krakkaskinn
ó, mikið er ég þakklát fyrir vinskapinn

Mig vantar kúst og fæjó
Verð að taka soldið til
Í kvöld er saumó
og hreint ég hafa vil

Mig vantar kúst og fæjó
Verð að pússa öll mín gólf
í kvöld er saumó
sitjum saman fram til tólf

kúst og fæjó,,kúst og fæjó.kúst og fæjó kúst fæ æ jo ó
kú kú kú kúst og fæjó kú kú kú kúst og fæjó
kúst og fæjó kúst og fæ æ æ æ jó.

 

Lag og texti: Heimilistónar