Fara í efni

Manstu ekki eftir mér

Til baka í söngbók

Manstu ekki eftir mér

Manstu ekki eftir mér 

 

Ég er á vestur leiðinni,  
á háheiðinni.  
Á hundrað og tíu,  
ég má ekki verða of seinn. O - Ó. 

Það verður fagnaður mikill vegna opnunar, 
fluggrillsjoppunnar. 
Svo ég fór, og pantaði borð fyrir einn. 

Ég frestaði stöðugt að fá mér starf,  
síðan síldin hvarf.  
Enda svolítið latur til vinnu  
en hef það samt gott. O - Ó. 

Konurnar fíla það mæta vel,  
allflestar að ég tel 
ég er og verð bóhem og finnst það flott. 

Manstu’ ekki eftir mér?  
Mikið líturðu vel út beibí frábært hár.  
Manstu’ ekki eftir mér?  
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár. 

Ég hef nokkurn lúmskan grun um að,  
ein gömul vinkona  
geri sér ferð þangað líka.  
Ég veit hvað ég syng... O - Ó 

Hún er á svotil á sama aldri og ég,  
asskoti hugguleg  
og svo er, hún á hraðri leið inn á þing. 

Manstu’ ekki eftir mér?  
Mikið líturðu vel út beibí frábært hár.  
Manstu’ ekki eftir mér?  
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár. 

Ég er á vestur leiðinni,  
á háheiðinni.  
Á hundrað og tíu,  
ég má ekki verða of seinn. O - Ó. 

Það verður fagnaður mikill vegna opnunar, 
fluggrillsjoppunnar. 
Svo ég fór, og pantaði borð fyrir einn. 

Manstu’ ekki eftir mér?  
Mikið líturðu vel út beibí frábært hár.  
Manstu’ ekki eftir mér?  
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár. 

Manstu’ ekki eftir mér?  
Mikið líturðu vel út beibí frábært hár.  
Manstu’ ekki eftir mér?  
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár.  
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár.  
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár. 

 

Lag: Ragnhildur Gísladóttir
Texti: Þórður Árnason