Vertu ekki að plata mig
Vertu ekki að plata mig
Ég sá hana í horninu á Mánabar
Hún minnti mig á Brendu Lee
Ég skellti krónu í djúkboxið
Og hækkaði vel í því
Hún þagði bara og lakkaði á sér neglurnar
Og þóttist ekki taka eftir mér
Í hægðum mínum labbaði að borðinu
Og sagði hátt
Komdu með, ég bið þig
Komdu með, ég bið þig
Ég vona að þú segir ekki nei við mig
Því trúðu mér, ég dái þig
Það eina sem skiptir máli, ert þú og ég
Vertu ekki að plata mig,
Þú ert bara að nota mig
Ég er ekki eins og allar stelpurnar
Sem hoppa upp í bíla, með hverjum sem er.
Ó, trúðu mér, ég er ekki að plata þig
Kæra vina viltu treysta mér,
Aðeins stjörnurnar á himnum
Vita hvað í mínu hjarta býr,
Ég myndi gera allt í veröldinni, fyrir þig
Ef þú aðeins vildir fylgja mér
Á drekanum við rennum niðrí bæ,
Í fjórða gír
Komdu með, ég bið þig
Komdu með, ég bið þig
Ég vona að þú segir ekki nei við mig
Því trúðu mér, ég dái þig
Það eina sem skiptir máli, ert þú og ég
Vertu ekki að plata mig,
Þú ert bara að nota mig
Ég er ekki eins og allar stelpurnar
Sem hoppa upp í bíla, með hverjum sem er.
Lag og texti: Björgvin Halldórsson