Fara í efni

Zikka Zakka

Til baka í söngbók

Zikka Zakka

Að reyna að ganga á línu
sem að liggur zikka zakka.
Getur verið erfitt
fyrir pínu litla krakka.
Stíga fram í vinstri
og stíga fram í hægri,
aftur fram í vinstri
og enn á ný í hægri.
Ef kemstu út á enda
skaltu fimi þína þakka.

Og þegar þú ert komin
út á enda skaltu bakka
alla leið til baka,
-þetta´er fyrir flinka krakka.
afturábak í vinstri
og enn á ný í hægri.
Ef kemstu út á enda
skaltu fimi þína þakka.

Lag og texti: Soffía Vagnsdóttir