Fara í efni

100% Ásláttur

100% Ásláttur

Sunnudaginn 1. mars 2020 kl 14 kemur slagverksdúettinn "100% Ásláttur" fram á tónleikum Tónlistarfélags Akureyrar í Hömrum í Hofi.

Leikin verða tónverk sem samin eru sérstaklega fyrir ásláttarhljóðfæri sem og útsetningar. Frumflutt verður tónverk eftir Inga Garðar Erlendsson fyrir 100% Áslátt og trompet sem er sérstaklega samið fyrir þessa tónleika. “100% Ásláttur” eru Emil Þorri Emilsson og Þorvaldur Halldórsson. Sóley Björk Einarsdóttir trompetleikari verður sérstakur gestur.

 

Styrktaraðilar Tónlistarfélags Akureyrar eru Rannís, Norðurorka og MAK.

 

Miðaverð á Tónleikana er 3500 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn Tónlistarfélags Akureyrar. Miðasala á mak.is og tix.is og í miðasölu Hofs.