Fara í efni

Grunntónfræði og tónheyrn (G1/G2)

Þrep: 1

Einingar: Forkröfur: Engar / G1

Lýsing: Táknmál tónlistarinnar er útskýrt og nemendur þjálfaðir í nótnaritun, tónheyrn, söng eftir nótum, taktþjálfun, hlustun og greiningu. sköpun o.fl. Þá eru hljóðfæri kynnt og mismunandi blær þeirra. Hluti námsins er valverkefni sem getur verið t.d. tónsmíð, eða ritgerð. Kennt er í hóptímum. Venjulegur námstími er 1 klst. á viku í tvö ár og kallast áfanginn fyrra árið G1 og seinna árið G2.  Markmiðið áfanganna eru að nemendur öðlist leikni í að syngja og klappa einfaldar 4 takta laglínur og hryndæmi, greina og syngja öll tónbil innan áttundar, skrifa upp alla dúra og molla í G- og F-lykli og merkja þá inn á hljómborð, sem og alla frumhljóma. Ennfremur þurfa þeir að geta tónflutt einfaldar laglínur, greint einföld form eftir heyrn og þekkja algengustu ítölsk orð.

Námsmat: Námsmatið byggist á prófum og verkefnaskilum. Tekið er lokapróf að vori í hvorum áfanga og kallast lokaprófið í G2 grunnpróf.

Kennsluáætlanir haustannar 2023 í G1 og G2 

Kennsluáætlanir vorannar 2024 í G1 og G2