Grunntónfræði (G1/G2)
Forkröfur G1: engar
Forkröfur G2: G1
Framhaldsskólaeiningar G1 og G2: engar
Þrep: 1
Lýsing: Táknmál tónlistarinnar er útskýrt og nemendur þjálfaðir í nótnaritun, tónheyrn, söng eftir nótum, takti, hlustun og greiningu, sköpun o.fl. Þá eru hljóðfæri kynnt og mismunandi blær þeirra. Hluti námsins er valverkefni sem getur verið t.d. tónsmíð, eða ritgerð. Kennt er í hóptímum. Venjulegur námstími er 1 klst. á viku í tvö ár og kallast áfanginn fyrra árið G1 og seinna árið G2. Nemendur 14 ára og eldri geta tekið áfangana tvo saman í fjaráfanganum Tónfræði 101 við tónlistarskólann. Markmið grunntónfræði eru að nemendur öðlist leikni í að syngja og klappa einfaldar 4 takta laglínur og hryndæmi, greina og syngja öll tónbil innan áttundar, skrifa upp alla dúra og molla í G- og F-lykli og merkja þá inn á hljómborð, sem og alla frumhljóma. Enn fremur þurfa nemendur að geta tónflutt einfaldar laglínur, greint einföld form eftir heyrn og þekkja algengustu ítölsk tónlistarorð.
Námsmat: Námsmatið byggist á prófum og verkefnaskilum. Tekið er lokapróf að vori í hvorum áfanga og kallast lokaprófið í G2 grunnpróf.
Kennsluáætlanir haustannar 2026 í G1 og G2
Kennsluáætlanir vorannar 2027 í G1 og G2