Fara í efni

Skapandi Hljóðvinnsla

Í skapandi hljóðvinnslu fær nemandinn leiðsögn í úrvinnslu og útsetningum.

Nemandinn fær þjálfun í notkun hljóðupptökuforrita og sýndarhljóðfæra með því markmiði að koma eigin lagasmíðum/tónverkum á framfæri.

Kennslan fer fram í hóptímum (3-4) í hóp.

Nemendur koma með verkefni í tímann og kynna fyrir hópnum. Verkefnin eru unnin með því markmiði að virkja samstarf innan hópsins og koma þeim sem best til skila. Nemendur koma til með að prufa sig áfram í hinum ýmsu verkþáttum sem snúa að hljóðversstarfinu, svo sem upptökustjórn, útsetningum, hljóðfæraleik og tækniþáttum.  Að vori verður afraksturinn kynntur fyrir samnemendum og leiðbeinendum. Nemendur segja frá sínu verkefni og útskýra verkferlið.

Hlutverk leiðbeinanda er að kynna hin ýmsu verksvið til sögunnar ásamt því að leiða hópinn áfram með því markmiði að gera hann að mestu sjálfbæran.