Fara í efni

Tónsmíðar, rytmískar

Þrep: 3

Einingar: 5

Forkröfur: F1, rytmísk framhaldstónfræði

Lýsing: Nemendur læra að skilja og notafæra sér tónsmíðatækni, form og tónlistarframvindu rytmískra tónlistarmanna í gegnum tíðina með því að semja tónlist í ákveðnum tónlistarstíl. Hljóðfærafræði og útsetningar koma inn í námið er nemendur skrifa tónlist fyrir einleikshljóðfæri og samspilshópa. Kennslan fer fram í einkatímum og í litlum hópum.

Námsmat: Ástundun, mæting og verkefnaskil.