Til að ljúka námi til stúdentsprófs í rytmískri tónlist þurfa nemendur að ljúka 200 einingum samtals. Nemendur ljúka að lágmarki 96 eða 98 einingum við TA í námsleiðinni Rytmísk tónlist og 86-102 einingum í sínum framhaldsskóla, eftir því í hvaða framhaldsskóla þeir eru. Sjá nánari útlistun á námsbrautum framhaldsskólanna hér til hægri.
Það eru 2-18 einingar í frjálsu vali á stúdentsbraut í Rytmískri tónlist. Hjá TA geta nemendur valið á milli fjölmargar áfanga til að auðga og útvíkka þekkingu sína á sviði tónlistar; áfangarnir geta verið í kjarna annarra námsleiða, í klassísk tónlist eða skapandi tónlist, eða ótengdir ákveðnum námsleiðum. Nemendur þurfa að athuga vel á hvaða þrepum áfangarnir eru sem þeir velja og að þeir hafi lokið þeim áföngum sem nefndir eru undir liðnum „Forkröfur“.