Fara í efni

Söngnám

Söngnám er talsvert ólíkt öðru hljóðfæranámi að því leiti að röddin sjálf er hljóðfærið. Hún er hluti af líkama hvers og eins og því einstök fyrir hvern einstakling. Röddin er einnig ólík mörgum öðrum hljóðfærum þar sem það er ekki hægt að ýta á einn takka til að framkvæma ákveðið hljóð. Þannig að söngur byggist mjög mikið á heyrninni okkar. Auk þess greinir söngnám sig frá öðru tónlistarnámi að því leiti að nemendur eru einnig að fást við túlkun á texta og framburð mismunandi tungumála.  Nemendur byrja yfirleitt seinna í söngnámi en í öðru tónlistarnámi og því mjög misjafnt hvernig forþekking nemenda á tónlist er þegar þeir hefja söngnám. Sumir hafa lært á hljóðfæri í mörg ár, eða sungið í kórum áður en þeir hefja söngnám en aðrir hafa ekki stundað tónlistarnám áður en þeir byrja að læra söng.

Undirbúningsdeild söngdeilda 9-12 ára og 13-16 ára

Í undirbúningsdeild söngdeilda er leitast við veita ungum söngnemendum traustan grunn í raddtækni og beitingu raddarinnar.  Þeir eru kynntir fyrir ýmsum stíltegundum tónlistar og fá að spreyta sig á margskonar tónlist. Nemendur fræðast um tónlist og flytjendur og vinna verkefni til að auka enn frekar við eigin þekkingaröflun.  Nemendur fá söngkennslu í tveggja til þriggja manna hópum.  Meðleikur verður í boði til að þjálfa söngnemendur í samspili og fá þeir tækifæri til að koma fram og æfa sviðsframkomu í öruggu umhverfi.  Auk söngkennslu og meðleiks sækja nemendur
einnig vikulega tónfræðitíma og samsöngstíma.

Klassískt söngnám á áfangabraut

Markmið klasíska söngnámsins er að kenna nemendum heilbrigða raddbeitingu, túlkun og framkomu.  Nám í klassískum söng skiptist í þrjú stig, grunnstig, miðstig og framhaldsstig. Námið er einstaklingsmiðað og er því misjafnt hversu lengi nemendur eru á hverju stigi, en reikna má með að nemendur séu um tvö til þrjú ár að meðaltali að ljúka hverju stigi. Allir nemendur fá einkakennslu í söng klukkutíma á viku. Auk þess sækja nemendur undirleikstíma, samsöngstíma, tónfræðitíma og tónheyrnartíma. Nemendur þjálfast í að syngja með öðrum og það að vera leiðandi í tónlistarflutningi.

Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni. Nemendur fá tækifæri til að syngja á tónleikum og taka þátt í uppfærslum innan skólans og fá þannig þjálfun í sviðsframkomu og færni í að syngja fyrir áheyrendur.

Rytmískt söngnám á áfangabraut

Markmið rytmíska söngnámsins er að kenna nemendum heilbrigða raddbeitingu, túlkun, framkomu og míkrófóntækni. Nám í rytmískum söng skiptist í þrjú stig, grunnstig, miðstig og framaldsstig. Námið er einstaklingsmiðað og er því misjafnt hversu lengi nemendur eru á hverju stigi, en reikna má með að nemendur séu um tvö til þrjú ár að meðaltali að ljúka hverju stigi. Allir nemendur fá einkakennslu í söng klukkutíma á viku. Auk þess sækja nemendur undirleikstíma, samsöngstíma, tónfræðitíma og tónheyrnartíma. Spuni er stór þáttur í rytmísku söngnámi og þjálfast nemendur í tækni til að takast á við þann þátt námsins.

Nemendur þjálfast í að syngja með öðrum og að vera leiðandi í tónlistarflutningi. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni. Nemendur fá tækifæri til að syngja með rytmískum hljómsveitum, taka þátt í uppfærslum innan skólans og fá þannig þjálfun í sviðsframkomu og færni í að syngja fyrir áheyrendur. Kennt er samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna.