Fara í efni

Diana Sus heldur tónleika í Hofi sunnudaginn 14. Apríl.

Diana Sus heldur tónleika í Hofi sunnudaginn 14. Apríl.

Lettneska söngkonan, gítarleikarinn og lagasmiðurinn Diana Sus er nemandi á öðru ári í Skapandi Tónlist í Tónlistarskólanum á Akureyri.  Tónlistarverkefnið hennar þetta árið er að halda þrenna tónleika.  Hún hélt vel heppnaða jólatónleika í desember, skemmtilega tónleika með suður amerískri tónlist í mars, og svo mun hún halda stóra lokatónleika í MenningarHúsinu Hofi sunnudaginn 14. apríl.

Á tónleikunum mun Diana fá til liðs við sig félaga sína frá Lettlandi í kvennabandinu "White Fox Band".  Einnig munu tónleikarnir verða teknir upp, bæði mynd og hljóð, af lettnesku tæknifólki.

Diana hefur hafið söfnun á Karolina Fund, til að standa straum af þeim kostnaði sem óneitanlega er við svona stórt verkefni.  Þar er hægt að kaupa miða á tónleikana auk þess sem bolir, nudd, snakk og fleira er í boði.

Við hvetjum fólk til að kaupa miða á tónleikana og fleira skemmtilegt á síðunni.