Fara í efni

Fyrrverandi og núverandi nemendur tónlistarskólans í stóru hlutverki með Sinfoníuhljómsveit Norðurlands

Fyrrverandi og núverandi nemendur tónlistarskólans í stóru hlutverki með Sinfoníuhljómsveit Norðurlands

24. mars frumflutti Sinfoníuhljómsveit Norðurlands nýtt verk eftir Atla Örvarsson ásamt því að flytja tvö önnur meistaraverk. Hið dulúðlega stórvirki Scheherazade eftir Rimsky-Korsakov var flutt af stórri hátíðarhljómsveit SN, og Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri og dóttir hans, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari,  fluttu saman ásamt hljómsveitinni einn fallegasta sellókonsert sögunnar, sellókonsert nr. 2 eftir Dvorák.  

Bæði Atli og Hrafnhildur eru fyrrverandi nemendur tónlistarskólans.

Auk Hrafnhildar, sem kom sá og sigraði í einleik sínum í Dvorák sellókonsertinum léku tveir núverandi sellónemendur með hljómsveitinni.  Yngri sellónemendur komu á æfingu og hlustuðu á þetta stórkostlega verk, og í því tilefni var skellt í mynd af núverandi nemendum ásamt Hrafnhildi og kennara þeirra, Ásdísi Arnardóttur.