Fara í efni

Stefán Elí gengur til Japans

Stefán Elí gengur til Japans

Föstudaginn 18. október sendi Stefán Elí frá sér ylvolgan smell sem ber heitið Walk You to Japan.

Lagið er ævintýrakennt og dansar Stefán við hugmyndina af pílagrímsgöngu til Japans. “Just take my hand and I’ll walk you to Japan”.  Textinn er sá bjartsýnasti sem Stefán Elí hefur sent frá sér í langan tíma og tengist þeirri speki sem hann aðhyllist nú að ekkert sé ómögulegt.

“Fyrir mér stendur þetta upp úr sem mitt uppáhaldslag úr eigin ofni og hef ég beðið ofurspenntur eftir að deila því.”

Stefán Elí sá um upptökur, lagasmíð og pródúseringu ásamt því að syngja og spila á rafgítar, en hann var þó ekki aleinn á báti þar sem Haukur Pálmason spilaði inn bongo trommur, og hinn margslungni gítargaldramaður Kristján Edelstein spilaði dásemdar-funkgítar eins og honum einum er lagið.

Hlusta má á lagið á Spotify hér:

Lagið er einnig komið á spilunarlista Skapandi Tónlistar: