Fara í efni

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir gefur út ljóðabókina VÉL

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir gefur út ljóðabókina VÉL

VÉL
 
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellókennari við TA sinnir jafnt orðunum í tónlistinni sem tónlistinni í orðunum, en hún gefur nú út þriðju ljóðabók sína, VÉL, hjá útgáfunni Sæmundi.
Bókina prýðir mynd af blárri leðurblöku, en innan í henni má finna ljóð um vetur, hræsni, stuð, Napóleon keisara III og frú hans Evgeníu, sjal, könnu, Beyoncé og Rihönnu, Simone de Beauvoir og fleira.
 
Skáldið les fimm ljóða sinna hér:
Myndatökumaður í þessu ágæta ljóðamyndbandi er Haukur Pálmason, sem einnig kennir við TA.
 
Hér má sjá myndir, finna útvarpsviðtal og skoða:
 
Við óskum Steinunni til hamingju með bókina góðu.