Fara í efni

Þorgerðartónleikar

Þorgerðartónleikar

Þorgerðartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 25. Febrúar klukkan 20:00.

Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikar helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Tónleikarnir verða í Hömrum í Hofi og aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum í Þorgerðarsjóð. 

Allir hjartanlega velkomnir :)