Fara í efni

Tónlistarskólafólk áberandi í tónleikaröð MAk

Tónlistarskólafólk áberandi í tónleikaröð MAk

Menningarhúsið Hof býður menningarþyrstum íbúum landsins upp á tónleikaröðina Í HOFI & Heim í desember og janúar.

Tónleikarnir fara fram á sviði Hamraborgar fyrir framan gesti í sal, fjöldinn takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur hverju sinni, en þeim verður einnig streymt á mak.is svo áhorfendur geta haft það huggulegt og notið tónleikanna líka í sófanum heima. Tónleikarnir hefjast kl. 20.

Fyrstu tónleikarnir fóru fram fimmtudaginn 3. desember þegar Magni Ásgeirsson og Stefán Elí leiddu saman hesta sína og renndu í sín bestu lög auk bráðskemmtilegra jólalaga. Þann 10. desember er komið að söngkonunni Þórhildi Örvarsdóttur og píanóleikaranum unga Alexander Edelstein og munu þau færa okkur hugljúfa vetrarstemningu með tónlist úr ýmsum áttum. Hinn margreyndi Friðrik Ómar og ungstirnið Eik Haraldsdóttir koma saman á spennandi tónleikum 14. janúar en með þeim spilar gítarleikarinn Hallgrímur Ómarsson. Síðust en ekki síst er það sjálf stórstjarnan Andrea Gylfadóttir og Einar Óli sem kemur fram undir listamannsnafninu iLo en þeirra tónleikar fara fram fimmtudaginn 21. janúar. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20.

Glöggir lesendur átta sig sjálfsagt á því að allir fjórir listamennirnir í yngri deildinni eru annaðhvort núverandi eða fyrrverandi nemendur tónlistarskólans.  Stefán Elí útskrifaðist úr skapandi tónlist síðastliðið vor, Alexander Edelstein útskrifaðist 2017 með framhaldspróf í klassískum píanóleik,  Eik Haraldsdóttir útskrifast næsta vor með framhaldspróf í rytmískum söng, og Einar Óli útskrifast næsta vor úr skapandi tónlist.

Til viðbótar við þetta eru þrír úr "reyndari deildinni" kennarar hér í tónlistarskólanum, en þær Þórhildur Örvarsdóttir og Andrea Gylfadóttir kenna báðar söng hér við skólann, auk þess sem Hallgrímur Ómarsson gítarleikari er einnig kennar hjá okkur.

Það er því óhætt að segja að tónlistarskólafólk sé áberandi í þessari bráðskemmtilegu tónleikaröð menningarfélagsins.

Tónleikaröðin Í HOFI & Heim er styrkt af Menningarsjóði Akureyrarbæjar.